top of page

Rest and Restore Protocol (RRP) – hljóðmeðferð sem hjálpar taugakerfinu að hvílast og endurnærast


Kona með heyrnartól, lokuð augu og hönd á brjósti, í ró – Rest and Restore Protocol (RRP) hljóðmeðferð

Mörg okkar sem höfum borið áföll með okkur lengi þekkjum tilfinninguna: líkaminn er þreyttur en nær samt ekki að hvílast. Svefninn er grunnur, maginn er í hnút, spennan sleppir ekki takinu, jafnvel þegar allt í kringum okkur er rólegt. Taugakerfið hefur lært að vera á verði og kann ekki lengur að slökkva á sér.


Rest and Restore Protocol (RRP) er ný hljóðmeðferð sem ég nota með skjólstæðingum mínum í EMDR-setrinu, samhliða EMDR og annarri áfallavinnu. Hún var þróuð af dr. Stephen Porges, höfundi polyvagal-kenningarinnar, ásamt hljóðhönnuðinum Anthony Gorry, og byggir á sérsamdri tónlist sem hlustað er á í rólegheitum, oftast heima og gjarnan fyrir svefninn.


RRP krefst ekki þess að þú gerir neitt. Þú hlustar, taugakerfið tekur við merkinu og líkaminn fær tækifæri til að finna aftur sinn eðlilega takt. Markmiðið er að styðja við hvíld, svefn, meltingu og tengingu við eigin líkama, það sem Porges kallar innskyn (interoception), hæfnina til að skynja hvernig okkur líður innra með okkur.


Fyrir fólk sem hefur lifað lengi í yfirspennu eða frosið, er þetta oft mjúk og örugg leið inn í dýpri vinnu. Ef þú vilt vita hvort RRP henti þér, hafðu samband og við skoðum það saman.


Hvað er RRP?


Rest and Restore Protocol er hlustunarmeðferð frá fyrirtækinu Unyte Health, sama fyrirtæki og gefur út Safe and Sound Protocol (SSP). RRP kom formlega á markað í júní 2025 og byggir á hljóðtækni sem kallast Sonocea® Sonic Augmentation Technology™.


Tónlistin í RRP er sérstaklega samin til að fylgja líffræðilegum töktum líkamans, svo sem öndun, hjartslætti og meltingarhreyfingum. Í henni eru meðal annars mjög hægir taktar, hægari en eyrað nemur (svokölluð innhljóð eða infrasound), sem eiga að draga taugakerfið með sér í rólegri takt. Þetta ferli kallast á ensku entrainment, og má þýða sem samstillingu.


Porges lýsir markmiðinu svona: „RRP er hannað til að fínstilla innskyn, hæfni okkar til að skynja innra ástand líkamans, og tengja þannig heila og líkama saman á ný.“


Hvernig virkar RRP?


Þegar við lifum lengi við streitu eða áföll raskast eðlilegir taktar líkamans. Heilastofninn, sem stýrir hjartslætti, blóðþrýstingi, meltingu og svefni, fer að vinna út frá ógn frekar en öryggi. Þegar það hefur staðið lengi getur tengingin milli heila og líkama rofnað, við hættum að finna fyrir líkamanum, verðum dofin eða flöt, eða þvert á móti sífellt á varðbergi.


Hugmyndin á bak við RRP er að hljóðið nái beint til þessara djúpu kerfa, án þess að fara í gegnum hugsun eða vilja. Í gegnum heyrnina og skynjun líkamans á takti og tíðni fær heilastofninn merki um öryggi og ró, og fær tækifæri til að endurheimta eðlilegan takt sinn. Með tímanum vakna boðleiðirnar milli innri líffæra og heila aftur til lífsins og við förum að finna fyrir okkur sjálfum á nýjan hátt.


Þetta er sú „samreglun“ (co-regulation) sem Porges talar um, nema hér er hún milli heilans og líkamans.


Hver er munurinn á RRP og SSP?


SSP vinnur með síaða mannsrödd og söng og beinist að félagslega tengslakerfinu okkar. RRP vinnur með hæga takta og djúpar tíðnir og beinist að sjálfsreglun, innri ró og tengingu við eigin líkama. Þau geta því bætt hvort annað upp.


Fyrir hverja er RRP?


RRP getur hentað þér ef þú kannast við eitthvað af þessu:


  • Þú átt erfitt með að sofna, sofa út nóttina eða vakna hvíld.

  • Þú ert örmagna en nærð samt ekki að hvílast eða slaka á.

  • Þú ert viðkvæm/ur fyrir áreiti og fljót/ur að fara í yfirspennu.

  • Þú ert að jafna þig eftir kulnun, langvarandi streitu eða áföll.

  • Þú finnur fyrir tilfinningalegum doða eða tengslaleysi við líkamann.

  • Þú glímir við spennu í maga eða meltingarvanda sem tengist streitu.


RRP er notað með fullorðnum og börnum, í áfallameðferð, við svefnvanda, kvíða og þunglyndi, og einnig í tengslum við taugaþroskaraskanir og heildræna læknismeðferð.


Hvernig fer meðferðin fram?


RRP er í meginatriðum heimahlustun undir handleiðslu meðferðaraðila. Ferlið er einstaklingsmiðað og hlustað er í heyrnartólum samkvæmt áætlun sem er sniðin að þínu næmi. RRP kemur ekki í staðinn fyrir EMDR eða aðra meðferð heldur er notað sem stuðningur við ró, svefn og líkamsvitund.


Hvað segja rannsóknir um virkni RRP?


Forrannsókn Unyte (110 þátttakendur). Fyrirtækið sem gefur RRP út birti niðurstöður úr forrannsókn þar sem þátttakendur svöruðu stöðluðum sjálfsmatslistum fyrir og eftir meðferð. Þar sýndu 93% bata í kvíða (GAD-7), 88% í áfallaeinkennum (PCL-5), 82% í þunglyndi (PHQ-9) og 76% í svefni (Athens Insomnia Scale), og stór hluti fór úr klínísku stigi yfir í ekki-klínískt. Einnig var greint frá bata í meltingareinkennum.


Rannsóknir á Sonocea-hljóðtækninni. Framleiðandi hljóðtækninnar sem RRP byggir á vísar til rannsókna við læknadeild Háskólans í Flórída, þar sem 88,5% þátttakenda (100 af 113) sýndu bætt líkamlegt og andlegt ástand eftir eina 15 mínútna hlustun og oxýtósín hækkaði hjá 72,7% í undirhópi sem mældur var. Ritrýnd birting er sögð væntanleg í Frontiers in Psychiatry árið 2026.


Tilfellalýsingar. Unyte hefur birt tilfellalýsingar frá meðferðaraðilum, meðal annars um fullorðinn mann með umfangsmikla áfallasögu sem var „algjörlega lokaður“ og fann lítið fyrir líkama sínum. Eftir daglega hlustun fyrir svefn, samhliða líkamsmiðaðri áfallameðferð, lýsti hann því að finna aftur fyrir öndun og líkama, „ró í fyrsta sinn á ævinni“, og fór aftur að sækja í félagsskap.


Hvað ber að hafa í huga


RRP er nýtt og rannsóknir eru enn skammt á veg komnar. Fyrstu niðurstöður eru lofandi en ekki sönnun. Forrannsóknir voru að miklu leyti framkvæmdar af framleiðanda, án samanburðarhóps og byggðu á sjálfsmati þátttakenda. Því er mikilvægt að líta á RRP sem gagnlegt verkfæri en ekki töfralausn.


Í EMDR-setrinu er RRP notað sem stuðningur við EMDR og aðra áfallameðferð, ekki í staðinn fyrir hana.


Viltu vita hvort RRP henti þér? Hafðu samband og við skoðum það saman.


Heimildir


Unyte Health: Rest and Restore Protocol™

Unyte Health: Rest and Restore Protocol: Q&A with Co-creators Dr. Stephen Porges and Anthony Gorry

Unyte Health (19. júní 2025): Unyte Health Launches Sonocea® Enhanced Rest and Restore Protocol™

Unyte Health, tilfellalýsing: Rest and Restore Protocol™ for Thawing Freeze and Healing Trauma

Sonocea: Sonic Augmentation™ – rannsóknir

SSP/RRP-meðferðaraðili í Hollandi: Rest and Restore Protocol

Comments


bottom of page