

Námskeið - EMDR lotumeðferð
12 vikna námskeið fyrir sálfræðinga og EMDR-meðferðaraðila | Haust 2026
Lengd - 12 vikur (sept.–nóv. 2026)
Fundir - 7 Zoom-fundir, mánudaga kl. 18:00–20:00
Milli funda - 6 kaflar með myndböndum og heimavinnu (~1–2 klst./kafla)
Þátttakendafjöldi - Hámark 10
Verð - 350.000 kr. (2 greiðslur, 175.000 kr. hvor)
Skilyrði - Lokin EMDR grunnþjálfun og starfandi sem meðferðaraðili
Viltu vinna dýpra með skjólstæðingum — og byggja upp sjálfbærara starf?
Margir meðferðaraðilar þekkja full bókaða viku, 50 mínútna viðtöl hvert á eftir öðru, lítið andrými og vaxandi þreyta - Kannastu við þetta?
Lotumeðferð gerir þér kleift að vinna markvissar og dýpra með hverjum skjólstæðingi, á styttri tíma, og um leið byggja upp starf sem er faglega innihaldsríkt og sjálfbært til lengri tíma. Námskeiðið er fyrir þig ef þú vilt taka næsta skref — hvort sem það er að byrja að bjóða lotumeðferðir eða þróa núverandi þjónustu áfram.
Hvaða kunnáttu færð þú á námskeiðinu?
Sex hagnýtir kaflar sem taka bæði á faglegri umgjörð lotumeðferða og klínískri færni innan EMDR:
-
Hugarfar og þitt „af hverju" — hindranir og skýr faglega sýn
-
Skipulag og umgjörð — RTEP-verklag, 8 fasar EMDR í lotuformi, gjaldtaka, skjalagerð, samningar
-
Markaðssetning og kynning — fagleg kynning, tengslanet, vefur og samfélagsmiðlar
-
Veftexti og klínísk færni I — vandaður veftexti, byggingarlegt líkan persónusundrunar, partavinna
-
Klínísk færni II — ASSYST, CIPOS, hvatningar-hugarfléttur, IFS-partavinna, DNMS
-
Klínísk færni III — GTEP fyrir hóplotur, bernskuáföll án orða, áframhaldandi þróun starfs
Fyrirkomulag
Lengd - 12 vikur (sept.–nóv. 2026)
Fundir - 7 Zoom-fundir, mánudaga kl. 18:00–20:00
Milli funda - 6 kaflar með myndböndum og heimavinnu (~1–2 klst./kafla)
Þátttakendafjöldi - Hámark 10
Verð - 350.000 kr. (2 greiðslur, 175.000 kr. hvor)
Skilyrði - Lokin EMDR grunnþjálfun og starfandi sem meðferðaraðili
-
Heildartími námskeiðsins er um 35–40 vinnustundir: 14 klst. í Zoom-fundum, ~14 klst. í myndbandsefni og 6–12 klst. í heimavinnu.
-
Zoom-fundirnir teljast jafnframt sem handleiðslutímar.
Borgar þetta sig?
-
Ein lota borgar upp allt námskeiðið – oft margfalt. Þegar þú metur virði þitt og kemur í verð fyrir þá umbreytingu sem þú skapar, þá skilar þessi fjárfesting sér strax. Þetta er í raun ekki flókið dæmi, þótt það geti virst stórt skref í fyrstu.
Hægt er að sækja um styrk í símenntunar- eða starfsþróunarsjóði.
Námskeiðið er fyrir þig ef þú:
-
vilt færa þig að hluta eða öllu leyti yfir í lotumeðferðarform
-
ert þegar að bjóða lotumeðferðir en vilt dýpka klíníska færni og skipulag
-
leitar að sjálfbærara vinnufyrirkomulagi með minni áhættu á kulnun
-
vilt kynnast verkfærum á borð við RTEP, ASSYST, CIPOS, GTEP og partavinnu innan lotuforms

Skráning
Viltu fá fulla námskeiðsáætlun og athuga hvort námskeiðið henti þér?
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á: sigridur@emdrsetrid.is