Notkunarskilmálar

Notkunarskilmálar eru settir til að uppfylla reglur um persónuvernd og vafrakökur.

Um vefsíðu EMDRsetursins

Þegar þú notar vef EMDRsetursins verða til upplýsingar um heimsóknina. EMDRsetrið miðlar þeim upplýsingum ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til lögboðinna eftirlitsaðila.

Notkun á vafrakökum

Svokallaðar vafrakökur eru notaðar á vefnum til að telja heimsóknir á vefinn. Vafrakökur eru sérstakar skrár sem komið er fyrir á tölvu notanda sem heimsækir viðkomandi vef og geymir upplýsingar um heimsóknina.

Við notum vafrakökur sparlega og með ábyrgum hætti. Upplýsingarnar notum við fyrst og fremst til að bæta notendaupplifun á vefnum. Notendur vefsins geta stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu.

EMDRsetrið notar verkfæri til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið auk gerðar vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

SSL skilríki

Vefurinn notast ekki við SSL skilríki. Þau eru eingöngu notuð fyrir fjarviðtöl sem eru ótengd þessum vefsíðum. 

Hafa samband / Ábending

Á vefnum er hægt að fylla út formið Hafa samband. Erindin eru áframsend í tölvupósti til þess starfsmanns/starfsmanna sem málið varðar. Afrit af erindum sem berast úr þessum formum eru vistaðar í vefumsjónarkerfi og geymdar að hámarki í 2 mánuði.

Skráning á námskeið/viðburði

Upplýsingar sem berast í gegnum bókunarkerfi vefsins vistast í vefumsjónarkerfi og eru geymdar að hámarki í 2 mánuði eftir námskeið/viðburð. Upplýsingar um greiðslukort vistast ekki í vefumsjónarkerfi.

Tenglar í aðra vefi

Á vef EMDRsetursins er stundum vísað á vefi annarra stofnana og fyrirtækja. Reglur EMDRsetursins um öryggi notenda gilda ekki á vefum utan hans. EMDRsetrið ber ekki ábyrgð á efnisinnihaldi eða áreiðanleika slíkra vefa.

Fyrirvari

Þótt leitast sé við að hafa upplýsingar á vef EMDR setursins réttar og í samræmi við nýjustu stöðu mála er ekki hægt að ábyrgjast að svo sé. Þetta á einnig við um tilvísanir og tengla í efni utan vefsins.

Frá heilsugaeslan.is