top of page

FRÆÐSLA & NÁMSKEIÐ

Námskeið sem eru í boði

Image by The Climate Reality Project

EMDR HÓPANÁMSKEIÐ

FYRIR EINSTAKLINGA SEM HAFA ORÐIÐ FYRIR ÁFALLI EÐA ERFIÐRI LÍFSREYNSLU

(G-TEP) EMDR Group Traumatic Episode Protocol (Shapiro, 2013a, Elaan Shapiro). EMDR hópameðferð er frábrugðin hefðbundinni hópmeðferð að því leyti að hópmeðlimir vinna sjálfstætt og ræða ekki áfallasögu sína við aðra. EMDR hópasamskiptareglur veita einnig sveigjanleika, þar sem notkun þeirra krefst ekki að aðilar í hópnum séu að vinna með sama vanda. Þannig forðast einstaklingar hvers kyns aukakveikjur, komast framhjá öllum mögulegum félagslegum kvíða sem tengist því að tala í hópi og geta hagnast á einhverjum af þeim jákvæðu ávinningi sem er sameiginlegur hópupplifun (Yalom, 1970).

Viðburðir framundan

EMDR og TRE 3ja daga helgarnámskeið

14. —16. nóvember 2025
Verð. Kr.129.000
Á þessu helgarnámskeiði fær þátttakandinn tækifæri til að vinna með og auka þekkingu og færni fyrir eigin heilsu. Afleiðingar áfalla og streituvaldar eru meðal viðfangsefna á námskeiðinu auk margs annars sem getur leitt til betri heilsu og bættra lífsgæða.

LÍKAMINN MAN

HÓPNÁMSKEIÐ Í EMDR OG TRE

Á þessu gagnvirka námskeiði fær þátttakandinn tækifæri til að vinna með og auka við eigin þekkingu og færni fyrir eigin heilsu. Afleiðingar áfalla og streituvaldar eru meðal viðfangsefna okkar í námskeiðinu auk margs annars sem getur leitt til betri heilsu og bættra lífsgæða. Á námskeiðinu er rifjað upp hvernig streita hefur áhrif á  líkamann og viðbrögð taugakerfisins við streitu og áföllum.  

Tilgangur námskeiðisins er bæði uppbygging og styrking einstaklinga fyrir úrvinnslu áfalla. Einnig aukum við þolmörk líkamans fyrir betra tilfinningalegt jafnvægi. Loks lærum við að tengja betur saman huga og líkama. Það bætir færni okkar við að takast á við streitu og almenna vanlíðan.

"Mér fannst Sigríður skapa mjög öruggt umhverfi fyrir mig og hópinn.

Fyrirmæli voru skýr og ég upplifði mig örugga og fannst ég skilja hluti vel.

Það tók stundum smá á að taka þátt sem hluti af hópi en virkaði líka hollt. Tímarnir voru passlega margir og það var gott að taka alltaf fyrir þfjú atvik. Þá myndaðist pláss fyrir atvik sem ég flokka ekki sem stór áföll heldur mylsnu - litlar vísbendingar um flóknari heild, sem mér fannst gott.

Þetta gaf mér mjög mikil. Takk kærlega fyrir mig."

pexels-kathekth-3049121.jpg

Sigríður stofnaði félagasamtökin Blátt áfram 2004 og vann í félaginu í meir en 15 ár, m.a. við fræðslu og ráðgjöf um forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum.

 

Hún hélt ótal erindi fyrir foreldra, stjórnendur og starfsfólk sem starfa með börnum og ungmennum með forvörnum gegn kynferðisofbeldi. Einnig leiðbeindi Sigríður við að þekkja einkenni og afleiðingar ofbeldis um leið og hvernig megi veita stuðning við þannig aðstæður.

 

Sigríður veitir einnig ráðgjöf til stofnana, íþróttafélaga auk annarra félagasamtaka varðandi innleiðingu á starfs- og siðareglum er snúa að verndun barna gegn ofbeldi. Sigríður er stundakennari við Háskólanum á Akureyri og EHÍ um sálræn áföll og ofbeldi.

Hentar EMDR meðferð?

bottom of page