


UM SETRIÐ

Velkomin í EMDR setrið
Á EMDRsetrinu starfar Sigríður Björnsdóttir, M.Sc. sálfræðingur og EMDR sérfræðingur (vottaður). Hún sérhæfir sig í úrlausn áfalla, bæði flókinna áfalla og vegna áfallastreituröskunar auk almennrar sálfræðiþjónstu.
Um mig
Sigríður hefur starfað á einkareknum sálfræðistofum frá útskrift M.Sc í sálfræði frá HR 2018. Hún er í reglulegri handleiðslu bæði hjá íslenskum og erlendum handleiðurum og tekur markvisst þátt í þjálfun og endurmenntun á EMDR meðferðarforminu og mikilvægri sérhæfingu því tengdu.
Sigríður Björnsdóttir, M.Sc. Sálfræðingur


-
Áföll og áfallastreituröskun
-
Lausnir vegna flókinna áfalla
-
Úrvinnsla áfalla og afleiðinga þeirra hjá unglingum og fullorðnum
-
Ráðgjöf fyrir aðstandendur barna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi
-
Fíknivandi
-
Ráðgjöf og fræðsla um áhrif erfiðra lífsviðburða (ACE) á börn fyrir stofnanir og starfsfólk sem starfar með börnum og ungmennum
-
Ráðgjöf og fræðsla um forvarnir gegn kynferðisofbeldi fyrir stofnanir og starfsfólk sem starfar með börnum og ungmennum
Sigríður stofnaði félagasamtökin Blátt áfram 2004 sem margir þekkja. Hún vann í félaginu í meir en 15 ár, m.a. við fræðslu og ráðgjöf um forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum. Hún hélt ótal erindi fyrir foreldra, stjórnendur og starfsfólk sem starfa með börnum og ungmennum með forvörnum gegn kynferðisofbeldi. Einnig leiðbeindi Sigríður við að þekkja einkenni og afleiðingar ofbeldis um leið og hvernig megi veita stuðning við þannig aðstæður. Hún hefur annast fræðslu til grunnskólabarna frá 5. bekk og upp í framhaldsskóla. Í starfi sínu hefur Sigríður hefur tekið þátt í ráðstefnum og starfað með öðrum félagasamtökum víðsvegar um heiminn um mikilvægi forvarna gegn kynferðisofbeldi á börnum.
Sigríður skrifaði og gaf út foreldahandbókina „Einkastaðir líkamans“ árið 2014 með Kristínu Bertu Guðnadóttur félagsráðgjafa og fjölskylduþerapista. Auk þess hefur Sigríður komið að kynningu á forvörnum og afleiðingum ofbeldis í fjölmiðlum, flutt erindi og stýrt vinnuhópum í samstarfi við Vitundarvakningu ríkisstjórnarinnar haustið 2012. Sigríður veitir einnig ráðgjöf til stofnana, íþróttafélaga auk annarra félagasamtaka varðandi innleiðingu á starfs- og siðareglum er snúa að verndun barna gegn ofbeldi. Sigríður er stundakennari við Háskólanum á Akureyri og EHÍ um sálræn áföll og ofbeldi. Hún hefur einnig annast fyrirlestra erlendis og hefur starfað með Wocad, sem fást við forvarnir gegn áfengis- og vímuefnanotkun kvenna. Einnig kemur hún að samstarfi um forvarnir gegn ofbeldi við aðrar þjóðir og hefur komið að þjálfun fólks í forvörnum frá Svíþjóð, Noregi, Grænlandi, Lettlandi og Ungverjalandi. Félögin Blátt áfram og Barnaheill sameinuðust 2019, en hún hætti störfum hjá samtökunum 2020. Sigríður Björnsdóttir var fyrst til að þýða s.n. ACE skimunarlista (http://hdl.handle.net/1946/24951). Lokaverkefni hennar fyrir BA próf í sálfræði fjallar um tengsl erfiðra upplifana í æsku við lífsgæði fólks seinna á lífsleiðinni.
FYRRI STÖRF
NÁMSKEIÐ OG FRÆÐSLA
MENNTUN
NÁMSKEIÐ 2023
NÁMSKEIÐ 2021
NÁMSKEIÐ 2019
HELSTU VIÐFANGSEFNI
TRÚNAÐARSTÖRF
STARFSÞJÁLFUN
HANDLEIÐSLA
NÁMSKEIÐ 2022
NÁMSKEIÐ 2020
HELSTU MEÐFERÐARFORM
EMDR ÞJÁLFUN
