EMDR Setrið

Áfallameðferð

EMDR meðferð samanstendur af átta þrepum þar sem unnið er með fortíð, nútíð og framtíð. Fengist er við atvik/áföll/upplifun/kveikju úr fortíð sem geta úskýrt af hverju einstaklingur finnur fyrir óþægindum eða erfiðri upplifun í daglegu lífi. Meðferðin gerir það að verkum að minningar eiga ekki að valda lengur vanlíðan.

Hvað Er EMDR?

Á EMDRsetrinu starfar Sigríður Björnsdóttir, M.Sc. sálfræðingur og EMDR sérfræðingur (vottaður). Hún sérhæfir sig í úrlausn áfalla, bæði flókinna áfalla og vegna áfallastreituröskunar auk almennrar sálfræðiþjónstu.

Sigríður Björnsdóttir, M.Sc. Sálfræðingur

EMDR Setrið býður upp á fjarviðtöl

Fjarviðtöl henta t.d. vel þegar COVID er á ferðinni. Einnig henta þau fyrir einstaklinga sem búa úti á landi eða komast ekki í viðtal vegna einnhveirra annarra aðstæðna.

  • EMDR og TRE Helgarnámskeið

    24. feb—25. feb 2024

    Verð. 55.000 kr fyrir 1. febrúar
    Verð 65.000 kr eftir 1. febrúar

    Á þessu námskeiði fær þátttakandinn tækifæri til að vinna með og auka þekkingu og færni fyrir eigin heilsu. Afleiðingar áfalla og streituvaldar eru meðal viðfangsefna á námskeiðinu auk margs annars sem getur leitt til betri heilsu og bættra lífsgæða.

  • HÓPANÁMSKEIÐ Í EMDR OG TRE

    Á þessu gagnvirka námskeiði fá þátttakendur tækifæri til að vinna með og auka við þekkingu sína og færni fyrir eigin heilsu.

    Streituvaldar og afleiðingar áfalla eru helsta viðfangsefni okkar á námskeiðinu.

    Dagsetningar fyrir næsta námskeið
    auglýst síðar.

  • Foreldra-hópmeðferð

    Valdeflandi EMDR námskeiðið styður foreldra til að nota úrræði sem mun leggja grunninn að aukinni getu í tengslamyndun og jákvæðum uppeldis aðferðum.

    Hópurinn hittist einu sinni í viku
    í 2 vikur.

    Dagsetningar fyrir næsta námskeið
    auglýst síðar.

ATHUGAÐU HVORT EMDR SÉ RÉTT FYRIR ÞIG.

Ertu tilbúinn að byrja?