hópmeðferð

EMDR

xx - xx xxxx 2024

Á þessu gagnvirka námskeiði fær þátttakandinn tækifæri til að vinna með og auka við eigin þekkingu og færni fyrir eigin heilsu. Afleiðingar áfalla og streituvaldar eru meðal viðfangsefna okkar í námskeiðinu auk margs annars sem getur leitt til betri heilsu og bættra lífsgæða.

Verð:

54.000 kr skráning til 1. des.
65.000 kr skráning eftir 1. des.
(
hægt að greiða með korti hér)

Dagskrá:

Föstudagur 19. janúar kl. 18.00 - 20.00

Laugardagur 20. janúar kl. 10.30 - 17.00

Sunnudagur 21. janúar kl. 9.00 - 16.00

Staðsetning:

Sjálfsrækt heilsumiðstöð, Brekkugata 3.
600 Akureyri

leiðbeinendur

Sigríður Björnsdóttir M.Sc. Sálfræðingur og EMDR sérfræðingur

Svava Brooks, TRE® Leiðbeinandi


Um helgina er rifjað upp hvernig streita hefur áhrif á  líkamann. Farið er yfir viðbrögð taugakerfisins við streitu og áföllum.  Einnig er farið í EMDR hópmeðferð fyrir úrvinnslu áfalla, TRE fyrir spennulosun á streitu og til að ná djúpri slökun fyrir líkama og taugakerfi. 

Tilgangur námskeiðisins um helgina er bæði uppbygging og styrking einstaklinga fyrir úrvinnslu áfalla. Einnig aukum við þolmörk líkamans fyrir betra tilfinningalegt jafnvægi. Loks lærum við að tengja betur saman huga og líkama. Það bætir færni okkar við að takast á við streitu og almenna vanlíðan.

Hvað er EMDR hópameðferð?

EMDR hópameðferð er frábrugðin hefðbundinni hópameðferð að því leyti að þátttakendur vinna sjálfstætt og ræða ekki áfallasögu sína við aðra. EMDR hópameðferð krefst ekki að aðilar í hópnum séu að vinna með sama vanda. Þannig forðast einstaklingar hvers kyns aukakveikjur, komast framhjá mögulegum félagslegum kvíða sem tengist því að tala í hópi og hagnast af þeim jákvæða ávinningi sem sameiginleg hópaupplifun getur verið (Yalom, 1970).

Hvað er TRE®?

TRE® (Tension, Stress & Trauma Release) er leið til að hjálpa líkamanum að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans. Leiðin er þróuð af Dr. David Berceli PhD til að virkja náttúruleg viðbrögð líkamans á öruggan hátt með því að leyfa líkamanum að skjálfa eða titra til að losa um vöðvaspennu og  róa taugakerfið. Með því að virkja þessi náttúrulegu viðbrögð líkamans í öruggu umhverfu, er verið að hvetja líkamann til þess að endurheimta jafnvægi sitt og ná slökun eftir langvarandi streitu.

Meira um Sigríði

Sigríður hefur starfað á einkareknum sálfræðistofum frá útskrift M.Sc í sálfræði frá HR 2018. Hún er í reglulegri handleiðslu bæði hjá íslenskum og erlendum handleiðurum og tekur markvisst þátt í þjálfun og endurmenntun á EMDR meðferðarforminu og mikilvægri sérhæfingu því tengdu.Hún sérhæfir sig í úrlausn áfalla, bæði flókinna áfalla og vegna áfallastreituröskunar auk almennrar sálfræðiþjónstu. Nánari upplýsingar um Sigríði og EMDRsetrinu hér.

Meira um Svövu

Svava Brook hefur unnið með TRE ráðgjöf síðan 2017. Svava hefur unnið með sjálfshjálparhópa á vegum einkafyrirtækja, stofnana og grasrótarsamtaka síðastliðinn 9 ár, við forvarnir gegn kynferðisofbeldi síðastliðinn 15. ár. Svava býður upp á fræðslu og námskeið um áhrif streitu og áföll á heilsu og líðan, fyrir fyrirtæki og stofnannir. Svava tekur reglulega þátt í þjálfun í TRE, vinnur sem TRE mentor og síðast hefur setið námskeið til að kenna börnum TRE. Hægt er að fræðast meira um Svövu og TRE á heimasíðu hennar: svavabrooks.com/tre

UMSÖGN UM EMDR HÓPNÁMSKEIÐ

Mér fannst námskeiðið gefa góða innsýn inn í þetta ferli sem EMDR meðferðin er. Mér fannst ég fá dýpri skilning með því að sjá þetta svona myndrænt fyrir framan mig á blaði og hafa það skriflegt. Ég var pínu kvíðin fyrir að vera í þessu með hóp en svo kom það mér á óvart að það var svo alls ekki óþægilegt og það var gott að heyra smá frá öðrum líka til að samhæfa upplifanir af þessu. Námskeiðið var frábær viðbót við EMDR einstaklingsmeðferðina og gefur enn betri skilning á þessu ferli.

Mér fannst Sigríður skapa mjög öruggt umhverfi fyrir mig og hópinn. Fyrirmæli voru skýr og ég upplifði mig örugga og fannst ég skilja hluti vel. Það tók stundum smá á að taka þátt sem hluti af hópi en virkaði líka hollt.Tímarnir voru passlega margir það var gott að taka alltaf fyrir þrjú atvik þá myndaðist pláss fyrir atvik sem ég flokka ekki sem stór áföll heldur mylsnu – litlar vísbendingar um flóknari heild, sem mér fannst gott. Þetta gaf mér mjög mikið. Takk kærlega fyrir mig.

UMSÖGN UM TRE HÓPNÁMSKEIÐ

TRE hjálpaði mér að læra að meta eigin líðan og nota ég streituskalann oft á dag til að ákveða næstu skref í deginum. Ef ég finn að ég er að nálgast sjöu af tíu, þá tóna ég mig niður og reyni t.d. að tala mun minna og róa mig niður. Maður er meira tengdur inn á við og ég reyni núna að passa 100% upp á heilsuna með aðstoð streituskalans. Ég afboða hiklaust matarborð eða vinkonu hittinga ef líkaminn minn segir mér að ég sé ofarlega í skalanum. Þetta hef ég aldrei gert áður, maður hefur alltaf keyrt sig áfram á tómum tanki!

Lærdómsríkt námskeið sem hefur hjálpað mér að tengjast líkamanum mínum betur og losa um spennu. Svava er yndislegur leiðbeinandi, með góða nærveru og kemur efninu mjög vel frá sér. Mæli eindregið með þessu námskeiði!

Þetta var mjög gott og fróðlegt námskeið og ég mun klárlega nýta mér þær aðferðir sem kendar eru, Svava er mjög notaleg, leiðbeinir vel og fylgist vel með hverjum og einum. Kærar þakkir fyrir mig


skrá sig á námskeiðið