EMDR og TRE

Helgarnámskeið

25 - 26. MAÍ 2024

Á þessu helgarnámskeiði förum við yfir hvernig streita hefur áhrif á  líkamann. Við skoðum viðbrögð taugakerfisins við streitu og áföllum.  Einnig er farið í EMDR hópmeðferð fyrir úrvinnslu áfalla, TRE fyrir spennulosun á streitu og til að ná djúpri slökun fyrir líkama og taugakerfi. 

Tilgangur námskeiðisins er bæði uppbygging og styrking einstaklinga fyrir úrvinnslu áfalla. Einnig aukum við þolmörk líkamans fyrir betra tilfinningalegt jafnvægi. Loks lærum við að tengja betur saman huga og líkama. Það bætir færni okkar við að takast á við streitu og almenna vanlíðan.

Við skráningu færðu sendann spurningarlista og nánari dagskrá fyrir helgina. 

Nánari upplýsingar  og dagskrá koma eftir skráningu. 

Verð: 55.000 kr fyrir 1. apríl
65.000 kr eftir 1. apríl

Netgreiðsla: Hægt að greiða hér

Dagsetning:

Laugardagur 25. maí kl. 9.00 - 17.00
Sunnudagur 26. maí kl. 9.00 - 17.00

Staðsetning:
Heillandi hugur - Fræðslu og heilsusetur 
Hlíðasmári 14 - Jarðhæð, Kópavogur

leiðbeinEndur

Sigríður Björnsdóttir M.Sc. Sálfræðingur og EMDR sérfræðingur

Svava Brooks, TRE® Leiðbeinandi

Svava Brooks,
TRE® Leiðbeinandi


Stutt myndband um EMDR hópameðferðina og hvernig hún fer fram

Hvað er EMDR hópmeðferð?

EMDR hópmeðferð er frábrugðin hefðbundinni hópmeðferð að því leyti að þátttakendur vinna sjálfstætt og ræða ekki áfallasögu sína við aðra. EMDR hópameðferð krefst ekki að aðilar í hópnum séu að vinna með sama vanda. Þannig forðast einstaklingar hvers kyns aukakveikjur, komast framhjá mögulegum félagslegum kvíða sem tengist því að tala í hópi og hagnast af þeim jákvæða ávinningi sem sameiginleg hópaupplifun getur verið (Yalom, 1970).

Meira um Sigríði

Sigríður hefur starfað á einkareknum sálfræðistofum frá útskrift M.Sc í sálfræði frá HR 2018. Hún er í reglulegri handleiðslu bæði hjá íslenskum og erlendum handleiðurum og tekur markvisst þátt í þjálfun og endurmenntun á EMDR meðferðarforminu og mikilvægri sérhæfingu því tengdu.Hún sérhæfir sig í úrlausn áfalla, bæði flókinna áfalla og vegna áfallastreituröskunar auk almennrar sálfræðiþjónstu. Nánari upplýsingar um Sigríði og EMDRsetrinu hér.

UMSÖGN UM EMDR HÓPNÁMSKEIÐ

,,Mér fannst námskeiðið gefa góða innsýn inn í þetta ferli sem EMDR meðferðin er. Mér fannst ég fá dýpri skilning með því að sjá þetta svona myndrænt fyrir framan mig á blaði og hafa það skriflegt. Ég var pínu kvíðin fyrir að vera í þessu með hóp en svo kom það mér á óvart að það var svo alls ekki óþægilegt og það var gott að heyra smá frá öðrum líka til að samhæfa upplifanir af þessu. Námskeiðið var frábær viðbót við EMDR einstaklingsmeðferðina og gefur enn betri skilning á þessu ferli. “

,,Mér fannst Sigríður skapa mjög öruggt umhverfi fyrir mig og hópinn. Fyrirmæli voru skýr og ég upplifði mig örugga og fannst ég skilja hluti vel. Það tók stundum smá á að taka þátt sem hluti af hópi en virkaði líka hollt. Tímarnir voru passlega margir það var gott að taka alltaf fyrir þrjú atvik þá myndaðist pláss fyrir atvik sem ég flokka ekki sem stór áföll heldur mylsnu – litlar vísbendingar um flóknari heild, sem mér fannst gott. Þetta gaf mér mjög mikið. Takk kærlega fyrir mig."


skrá sig á námskeiðið