top of page

EMDR lotumeðferð: Af hverju ég býð hana – og hvað það þýðir fyrir þig

Margir sem leita sér hjálpar vegna áfalla eða langvarandi vanlíðan þekkja þessa tilfinningu: að vikulegir viðtalstímar séu góð leið, en samt allt of hægir. Dagskráin er þétt, orkan af skornum skammti, og hugsunin um að byrja upp á nýtt í hverjum tíma – rifja upp samhengið, finna sig aftur – getur verið þreytandi í sjálfu sér. Fyrir suma hentar önnur nálgun betur: EMDR lotumeðferð.

Hvað er EMDR lotumeðferð?

EMDR lotumeðferð er samfelld, einstaklingsmiðuð meðferð sem er sérsniðin að þínum markmiðum. Í stað þess að dreifa vinnunni á marga 50 mínútna tíma yfir margar vikur eða mánuði, er unnið í lengri samfelldum lotum á 1–3 dögum – yfirleitt tveir tímar fyrir hádegi, klukkustundar hlé, og svo 2–3 tíma meðferð eftir hádegi.

Ferlið byrjar á fríu 30 mínútna spjalli þar sem við metum saman hvort lotumeðferð henti þínum þörfum. Ef við ákveðum að halda áfram tekur við 90 mínútna forviðtal þar sem vandinn er skilgreindur nánar, markmið sett og væntingar skoðaðar. Þú færð þá líka persónulega meðferðarvinnubók sem fylgir þér fyrir, á meðan og eftir lotuna. Um 30 dögum eftir sjálfa lotumeðferðina er svo 50 mínútna eftirviðtal til að meta og styðja við þær breytingar sem hafa átt sér stað.

Þessi taktur – samfelldur tími með hvíld á milli – gerir okkur kleift að kafa dýpra án þess að það verði yfirþyrmandi. Tíminn sem líður á milli lota hjálpar líkama og huga að meðtaka vinnuna, í stað þess að þurfa að setja hana til hliðar og taka upp þráðinn viku síðar.

Fyrir hverja hentar lotumeðferð?

EMDR lotumeðferð er ekki fyrir alla, en hún getur hentað vel þeim sem:

  • Upplifa alvarleg eða viðvarandi einkenni áfallastreitu og hafa ekki náð tilætluðum árangri með öðrum meðferðum.

  • Glíma við fíknivanda eða flókin áföll (CPTSD).

  • Eru áhugasöm og vilja finna fleiri leiðir til að hafa áhrif á vanlíðan og streitueinkenni sín.

  • Hafa takmarkaðan tíma, eða vita nákvæmlega hvaða atburð eða minningu þau vilja einbeita sér að.

Lotumeðferð hentar líka oft foreldrum með lítinn tíma aflögu, fagfólki með annasama dagskrá, eða hverjum þeim sem finnst vikulegir tímar frekar yfirþyrmandi en styðjandi í núverandi lífsaðstæðum.

Hvað má búast við?

Í lotunni sjálfri má búast við mörgum umferðum af EMDR úrvinnslu með hléum inn á milli. Ég leiðbeini þér í gegnum slökunar- og jarðtengingaræfingar sem hjálpa til við að mæta sterkum tilfinningum þegar þær koma upp, þannig að úrvinnslan verði örugg og viðráðanleg þrátt fyrir dýptina.

Eftir lotumeðferðina er eðlilegt að finna fyrir tilfinningasveiflum eða þreytu – heilinn og líkaminn halda áfram að vinna úr og samþætta reynsluna eftir að lotunni sjálfri lýkur. Þess vegna er sjálfsumönnun í forgangi næstu daga á eftir, og við höldum áfram samtalinu í eftirviðtalinu.

Það er líka mikilvægt að hafa í huga að EMDR lotumeðferð er ekki ævarandi lausn allra mála – hjá sumum er hún fyrsta skrefið, hjá öðrum liður í lengra ferli, og stundum er þörf á frekari stuðningi eða annarri meðferð í kjölfarið.

Af hverju ég býð upp á hana – og hvað það þýðir fyrir þig

Í starfi mínu sem EMDR meðferðaraðili hef ég séð hversu ólíkar þarfir fólks eru þegar kemur að því að vinna úr áföllum. Sum þrífast best á föstum, vikulegum takti. Önnur eru einmitt á þeim stað í lífinu – hvort sem það er vegna anna, fjölskylduábyrgðar eða þess að þau vilja einfaldlega komast dýpra hraðar – að samfelld lota hentar miklu betur. Ég vildi geta boðið upp á báðar leiðirnar, því rétta formið á meðferð getur skipt jafn miklu máli og innihald hennar.

Fyrir þig sem skjólstæðing þýðir þetta að þú þarft ekki að aðlaga þig að einu ákveðnu formi meðferðar – meðferðin er löguð að þér. Lotuformið gerir mér kleift að fylgja þér þétt eftir í gegnum ferli sem annars myndi dreifast á margar vikur, og oft kemur eitthvað nýtt í ljós einmitt vegna þess að við þurfum ekki stöðugt að byrja upp á nýtt og leggja grunninn aftur í hvert sinn. Úrvinnslan verður dýpri því hún fær að halda áfram, umferð eftir umferð, á meðan hún er enn ljóslifandi – í stað þess að kólna niður á milli vikulegra tíma.

Ef þú kannast við að hafa fundið að eitthvað djúpstætt eigi enn eftir að breytast, að þú skiljir hlutina núna huglægt en finnir samt fyrir vanlíðan í líkamanum, eða að þú þurfir einfaldlega hjálp – og talsvert af henni – strax, þá gæti EMDR lotumeðferð verið leið sem hentar þér.

Taktu skrefið í átt að bættri líðan og betri heilsu.


 
 
 

Comments


bottom of page